Fyrirtækjakeppni á Suðurlandi í Paintball
Mótið hefst
Miðvikudaginn 18 ágúst og er áætlað að það muni standa yfir í 3 kvöld. Úrslit verða 20 ágúst.
Keppt verður
á virkum dögum svo að allir ættu að geta tekið þátt.
Keppt verður í 4 manna liðum. Ef áhugi er meiri innan vinnustaðarins þá tökum við undankeppni fyrir viðkomandi fyrirtæki til að velja í 4 manna lið.Riðlarnir verða þannig uppsettir að hvert fyrirtæki fær að keppa að lágmarki tvisvar sinnum.
Þáttökugjald í keppnina er núll krónur á mann og innifalið í því er leiga á öllum búnaði sem þarf til að taka þátt á meðan mótið stendur yfir.
Skotin kosta hinsvegar 1.200- krónur per 100 skot.Mótið verður haldið á paintballsvæði okkar
í landi Bíldfells í Grafningi, 12 kílómetra frá Selfossi.Þeir sem ætla að taka þátt þurfa að
skrá sig sem allra fyrst eða ekki seinna en fyrir 17 ágúst. Paintball ( litbolti ) er skemmtilegur leikur sem eykur samstöðu vinnufélaga og fjölskyldna, auk þess að vera hin frábærasta skemmtun sem skapar ánægjulegar minningar , sem er eitt af því dýrmætasta sem við eigum.
Paintball er sérlega hentugur leikur fyrir hópefli, þar sem hann reynir á rökhugsun, leiðtogahæfni og samhæfni til að ná settu markmiði í leiknum, sem er að sjálfsögðu að sigra.
Paintball er leikur þar sem ekki er spurt um aldur eða kyn, enda spila hann milljónir manna um alla veröld. Atvinnumenn gegna stóru hlutverki í þessari grein ein og í öðrum íþróttum, enda hefur paintball
verið spilað frá því um 1980.
Líka viljum við benda á að fjölmiðlaumfjöllun verður um mótið og því er þetta fín auglýsing fyrir þau fyrirtæki sem taka þátt.
Ef nánari upplýsingar vantar er best að hringja í 857-2000( athugið að 15 ára aldurstakmark er í paintball)